Verum Samfó


Verum Samfó með Bigga Veiru (Gusgus) og Dr. Gunna. Textann gerði Hallgrímur Helgason. Laginu er ætlað að fá fólk til að kjósa Samfylkinguna -XS- og er sérstaklega hannaði til að höfða til jaðarsettra kjósenda og þeirra sem eru enn á báðum áttum.

VERUM SAMFÓ

Pólitík er tík tík tík
bítur as we speak speak speak
allir eru að rífast
stöffið stendur blýfast
alltof margir þættir
og allir eru hættir
að fylgjast með með með með
við erum bara peð peð peð
fáum engu ráðið
róum fram í gráðið
og hyllum Bjarna Ben Ben Ben
hann á svo mikinn pen pen pen

Falson, Wintris, Andersen!
og alla frændur Bjarna Ben!
Komum þessum fuglum frá!
Og fáum nýja stjórnarskrá!

Ekki fara að kjósa aftur gömlu mafíuna
Vertu heldur samfó inn í nýja breytta tíma

Pólitík er tík tík tík
bítur as we speak speak speak
allir eru að rífast
stöffið stendur blýfast
alltof margir þættir
og allir eru hættir
að fylgjast með með með með
við erum bara peð peð peð
fáum engu ráðið
róum fram í gráðið
og hyllum Bjarna Ben Ben Ben
hann á svo mikinn pen pen pen

Sammarinn er næs næs næs
á samfélagið læs læs læs læs
hugsar vel um alla
ekki bara kalla
yndis femínisti
með feðraveld’í frysti
svo vill hún öllum vel vel vel
þessi sænska volvó-vél vél vél vél
Segjum bless við Panama!
uppreist æru, banana!
lagaklæki leynimakk!
skattaparadísarpakk!

Ekki fara að kjósa aftur gömlu mafíuna
Vertu heldur samfó inn í nýja breytta tíma

Verum samfó…

No Responses to “Verum Samfó”

Post a Comment